Beint í leiðarkerfi vefsins.

Beint í vöruleit.


Innskrá


Tracker 2 snjóflóðaýlir

Vara til á lager

Verð 54 282 ISK
Fjöldi:

Vörulýsing

 

Val fagmanna sem vilja nákvæmustu upplýsingarnar í rauntíma og einnig þeirra sem vilja ýli sem er einfalt að læra á og nota þegar á þarf að halda.

Tracker 2 býður upp á hröðustu og nákvæmustu fínleit allra snjóflóðaýla með 3 móttökuloftnetum og rauntímaupplýsingum á skjá. Skjárinn birtir vegalengd að gröfnum ýli í metrum talið og 5 ljósdíóður sýna stefnuna. Sama þægilega og einfalda notendaviðmótið og á Tracker DTS bara léttari ýlir með hraðari leitarmöguleika.

Ljós gefa til kynna hvort margir ýlar séu innan færis og „special mode“ stilling fyrir þá sem vilja stjórna ýlinum meira. Stórir takkar og gripraufar gera það auðvelt að nota ýlinn með þykka hanska án þess að taka þá af sér. Freri ehf getur uppfært hugbúnað í Tracker 2 ýlum ef nýr hugbúnaður kemur út.

Þyngd: 181gr án slíðurs og rafhlaðna, 295gr með slíðri og rafhlöðum.

Stærð: 13x8,5x2,5 cm

Orkugjafi: 3 AAA alkaline rafhlöður

Ábyrgð: 5 ár

Slíður og leiðbeiningar fylgja með en leiðbeiningar koma ekki í stað námskeiðs og öruggrar ferðahegðunar. Hafðu samband við okkur ef þig vantar námskeið í björgun úr snjóflóði.

 

Verð 54 282 ISK

Vöruleit


Nýlega skoðað