Beint í leiðarkerfi vefsins.

Beint í vöruleit.


Innskrá


Freri

 

Freri ehf. flytur inn og selur hágæða útivistar, öryggis og björgunarbúnað frá mjög virtum framleiðendum á sínu sviði.  Við byggjum á margra ára reynslu af ferðamennsku og björgunarstörfum og kennslu og ráðgjöf á þeim sviðum.

Freri ehf. var stofnað til að flytja inn björgunarbúnað frá CMC Rescue.  Vörurnar frá þeim hafa í mörg ár verið fyrsta val fremstu fjallabjörgunarhópa á Íslandi.  Vöruúrvalið er mikið fyrir fjallabjörgun, slökkvilið, sjó og straumvatnsbjörgun og rústabjörgun.  Einnig eru CMC Rescue með búnað fyrir löggæsluaðila.  Vörurnar frá CMC eru fæstar á síðunni okkar.  Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar um vörur frá CMC Rescue.

Freri er með umboð fyrir Backcountry Access sem eru með ýmsar snjóöryggisvörur.  BCA þróaði fyrsta stafræna snjóflóðaýlinn og hafa verið í fremstu röð upp frá því.  Rannsóknir á snjóflóðabjörgun og fræðsla eru BCA hugleikin og ætlar Freri ehf. að feta í þeirra fótspor með forvarnir.

Freri er einnig með umboð fyrir Princeton Tec sem er leiðandi framleiðandi í heiminum á höfuðljósum til að nota í iðnaði, hernaði og útivist.  Princeton Tec framleiðir einnig handljós, kafaraljós og strobeljós.

 

 

Freri ehf.

Sími 868-6131

Tölvupóstur freri[hjá]freri.is


Vöruleit